Verið velkomin á nýja vefsíðu Lionsklúbbs Mosfellsbæjar!  Síðan er enn í vinnslu og enn verið að þróa viðmót og leiðakerfi síðunnar.
Við þökkum biðlundina og hvetjum ykkur til að fylgjast með okkur hér

Sviðaveisla 2026 verður 23. október

Sviðaveisla Lions í Mosfellsbæ verður í Harðarbóli - upplýsingar um skráningu í frétt

Árleg sviðaveisla Lionsklúbbs Mosfellsbæjar verður haldin í Harðarbóli(félagsheimili hestamannafélagsins Harðar)í Mosfellsbæ, föstudaginn 23. október 2026. Ræðumaður kvöldsins verður Daníel Hansen forstöðumaður fræðaseturs um forystufé. Aðgangseyrir er 6.900kr. Skráning hér

Heimsókn – Uppbygging á Orkureitnum

Félagar í Lionsklúbbi Mosfellsbæjar heimsóttu Safír byggingar og kynntu sér uppbygginguna á Orkureitnum við Laugardalinn. Klúbbfélagi okkar, Þorsteinn Yngvi Bjarnason, fjármálastjóri Safír, tók á móti hópnum í glæsilegri sýningaríbúð með einstöku útsýni yfir Laugardalinn og út yfir sundin blá.

Herrakvöld 2026 – Lionsklúbbur Mosfellsbæjar

Herrakvöld Lionsklúbbs Mosfellsbæjar 2026 fer fram föstudaginn 13. febrúar n.k. í Hlégarði.
Herrakvöldið er fyrir löngu orðið fastur liður í starfi Lionsklúbbs Mosfellsbæjar og hefur um árabil verið stærsta fjáröflun klúbbsins.

MUGISON – slær á létta strengi
Glæsilegt sjávarréttahlaðborð
Málverkauppboð
Happdrætti
Herrakvöldið er fjáröflunarkvöld fyrir hjálparsjóð klúbbsins, öll framlög úr sjóðnum renna til brýnna góðgerðarmála

Útilega í Skógarnesi við Apavatn: samvera, söngur, grill og gleði

Við í Lionsklúbbi Mosfellsbæjar kvöddum sumarið með skemmtilegri útilegu í Skógarnesi við Apavatn, þar sem um fjörutíu manns og þrír hundar tóku þátt í gleðinni. Dagskráin var hefðbundin, m.a. klúbbfundur, golfmót og grillað lambalæri að hætti Kidda. Veðrið lék við okkur, sérstaklega framan að og var mikil stemmning fram á nótt. Sunnudagurinn var rólegri og fór að mestu í frágang, einhverja fiskiveiði og gott spjall. Við þökkum öllum sem tóku þátt, sérstaklega Lionsklúbbnum Úu, fyrir að halda í heiðri með okkur þessari dýrmætu hefð. Kíktu á fréttina til að lesa meira um þessa frábæru helgi!