Verið velkomin á nýja vefsíðu Lionsklúbbs Mosfellsbæjar!  Síðan er enn í vinnslu og enn verið að þróa viðmót og leiðakerfi síðunnar.
Við þökkum biðlundina og hvetjum ykkur til að fylgjast með okkur hér

Herrakvöld Lionsklúbbs Mosfellsbæjar 2026 fer fram föstudaginn 13. febrúar n.k. í Hlégarði. Herrakvöldið er fyrir löngu orðið fastur liður í starfi Lionsklúbbs Mosfellsbæjar og hefur um árabil verið stærsta fjáröflun klúbbsins. MUGISON - slær á létta strengi Glæsilegt sjávarréttahlaðborð Málverkauppboð Happdrætti Herrakvöldið er fjáröflunarkvöld fyrir hjálparsjóð klúbbsins, öll framlög úr sjóðnum renna til brýnna góðgerðarmála

Herrakvöld Lionsklúbbs Mosfellsbæjar 2026 fer fram föstudaginn 13. febrúar n.k. í Hlégarði.
Herrakvöldið er fyrir löngu orðið fastur liður í starfi Lionsklúbbs Mosfellsbæjar og hefur um árabil verið stærsta fjáröflun klúbbsins. Stuðningur þeirra sem sækja herrakvöldið gerir okkur mögulegt að styðja við góð málefni, smá sem stór, og fellur því sérstaklega vel að einkunnarorðum Lionshreyfingarinnar sem eru einmitt “Við leggjum lið”.

DAGSKRÁ
Veislustjóri kvöldsins: ÖRVAR JÓHANNSSON
ÞORKELL CÝRUSSON sér um tónlist undir borðhaldi og leiðir fjöldasöng

MUGISON – slær á létta strengi

MÁLVERKAUPPBOРOG HAPPDRÆTTI

MATSEÐILL:
Safran-löguð humarsúpa með focaccia-brauði

Hvítlúðu Ceviche
Innbakaður lax með piparrótar rjómasósu
Bruschetta með krabbasalati
Steiktur þorskhnakki með sítrónusmjörsósu
Marineraðar steiktar gellur með bernaisesósu
Spænsk paella með skelfiski
Gratíneraður plokkfiskur Karrí- og sinnepssíld með rúgbrauði og smjöri
Grafinn lax með sinnepssósu
Djúpsteiktar tempura-rækjur með teriyakisósu
Skelfiskbollur í ananas chilli

Hvítlauksristað kartöflusmælki með parmesanosti, ferskt salat, krydd hrísgrjón, brauð með pestó

VIÐ LEGGJUM LIÐ
Herrakvöldið er fjáröflunarkvöld fyrir hjálparsjóð Lionsklúbbs Mosfellsbæjar. Allur ágóði af herrakvöldinu rennur því til brýnna góðgerðarmálefna

ÞÖKKUM VELGJÖRÐARFÓLKI KLÚBBSINS INNILEGA FYRIR VEITTAN STUÐNING Í GEGNUM ÁRATUGINA

Miðar og borðapantanir:

Bragi Ragnarsson, 843-4226

Ragnar Þorgeirsson, 774-7373

Miðasala mun einnig fara fram á midiX.is.

Miðaverð kr.16.500,-

Deila fréttinni:

Fleiri fréttir af klúbbstarfinu

Sviðaveisla Lions í Mosfellsbæ verður í Harðarbóli - upplýsingar um skráningu í frétt

Sviðaveisla 2026 verður 23. október

Árleg sviðaveisla Lionsklúbbs Mosfellsbæjar verður haldin í Harðarbóli(félagsheimili hestamannafélagsins Harðar)í Mosfellsbæ, föstudaginn 23. október 2026. Ræðumaður kvöldsins verður Daníel Hansen

Lesa meira

Heimsókn – Uppbygging á Orkureitnum

Félagar í Lionsklúbbi Mosfellsbæjar heimsóttu Safír byggingar og kynntu sér uppbygginguna á Orkureitnum við Laugardalinn. Klúbbfélagi okkar, Þorsteinn Yngvi Bjarnason, fjármálastjóri Safír, tók á móti hópnum í glæsilegri sýningaríbúð með einstöku útsýni yfir Laugardalinn og út yfir sundin blá.

Lesa meira