Verið velkomin á nýja vefsíðu Lionsklúbbs Mosfellsbæjar!  Síðan er enn í vinnslu og enn verið að þróa viðmót og leiðakerfi síðunnar.
Við þökkum biðlundina og hvetjum ykkur til að fylgjast með okkur hér

Heimsókn – Uppbygging á Orkureitnum

Félagar í Lionsklúbbi Mosfellsbæjar heimsóttu Safír byggingar og kynntu sér uppbygginguna á Orkureitnum við Laugardalinn. Klúbbfélagi okkar, Þorsteinn Yngvi Bjarnason, fjármálastjóri Safír, tók á móti hópnum í glæsilegri sýningaríbúð með einstöku útsýni yfir Laugardalinn og út yfir sundin blá.

Félagar í Lionsklúbbi Mosfellsbæjar heimsóttu á dögunum Safír byggingar og kynntu sér uppbyggingu þeirra á Orkureitnum við Laugardalinn í Reykjavík. Klúbbfélagar höfðu áður lagt leið sína þangað, en þá var verkefnið rétt að hefjast. Kynningin fór að þessu sinni fram í glæsilegri sýningaríbúð í A hluta svæðisins, en úr íbúðinni er frábært útsýni yfir Laugardalinn og yfir að Esjunni og á bjartviðrisdögum má sjá glitta í Snæfellsjökul. Helst mætti líkja útsýninu við að hafa lifandi landslagsmálverk í stofunni.

Það var klúbbfélagi okkar, Þorsteinn Yngvi Bjarnason, fjármálastjóri Safír, sem tók á móti hópnum og sagði okkur frá verkefninu. Orkureiturinn er byggður í fjórum áföngum og þar munu verða rúmlega 450 íbúðir, auk verslunar- og þjónusturýma á jarðhæð. Arkitektastofan Nordic Office of Architecture hannar svæðið, en Rut Káradóttir innanhússarkitekt hefur veg og vanda af hönnun innréttinga og sameiginlegra rýma. Á milli húsanna verða inngarðar að evrópskri fyrirmynd. Orkureiturinn er fyrsta íbúðaskipulagið í Reykjavík sem hlýtur BREEAM-umhverfisvottun auk þess sem stefnt er að því að allar íbúðir á reitnum hljóti Svansvottun.

Hér er á ferðinni metnaðarfullt uppbyggingarverkefni og augljóst að vandað hefur verið til verka við hönnun og skipulag á Orkureitnum. Það var frábært að sjá hversu vel hefur tekist að byggja upp í samræmi við það sem lagt var upp með í byrjun, og verður áhugavert að fylgjast með áframhaldandi uppbyggingu á reitnum. Það verður ekki síður fróðlegt að fá að kíkja í heimsókn á ný eftir nokkur ár, þegar uppbyggingunni verður lokið.

Við þökkum Þorsteini Yngva og Safír kærlega fyrir góðar móttökur og fróðlega kynningu.

Deila fréttinni:

Fleiri fréttir af klúbbstarfinu

Sviðaveisla Lions í Mosfellsbæ verður í Harðarbóli - upplýsingar um skráningu í frétt

Sviðaveisla 2026 verður 23. október

Árleg sviðaveisla Lionsklúbbs Mosfellsbæjar verður haldin í Harðarbóli(félagsheimili hestamannafélagsins Harðar)í Mosfellsbæ, föstudaginn 23. október 2026. Ræðumaður kvöldsins verður Daníel Hansen

Lesa meira

Herrakvöld 2026 – Lionsklúbbur Mosfellsbæjar

Herrakvöld Lionsklúbbs Mosfellsbæjar 2026 fer fram föstudaginn 13. febrúar n.k. í Hlégarði.
Herrakvöldið er fyrir löngu orðið fastur liður í starfi Lionsklúbbs Mosfellsbæjar og hefur um árabil verið stærsta fjáröflun klúbbsins.

MUGISON – slær á létta strengi
Glæsilegt sjávarréttahlaðborð
Málverkauppboð
Happdrætti
Herrakvöldið er fjáröflunarkvöld fyrir hjálparsjóð klúbbsins, öll framlög úr sjóðnum renna til brýnna góðgerðarmála

Lesa meira