Félagar í Lionsklúbbi Mosfellsbæjar heimsóttu á dögunum Safír byggingar og kynntu sér uppbyggingu þeirra á Orkureitnum við Laugardalinn í Reykjavík. Klúbbfélagar höfðu áður lagt leið sína þangað, en þá var verkefnið rétt að hefjast. Kynningin fór að þessu sinni fram í glæsilegri sýningaríbúð í A hluta svæðisins, en úr íbúðinni er frábært útsýni yfir Laugardalinn og yfir að Esjunni og á bjartviðrisdögum má sjá glitta í Snæfellsjökul. Helst mætti líkja útsýninu við að hafa lifandi landslagsmálverk í stofunni.
Það var klúbbfélagi okkar, Þorsteinn Yngvi Bjarnason, fjármálastjóri Safír, sem tók á móti hópnum og sagði okkur frá verkefninu. Orkureiturinn er byggður í fjórum áföngum og þar munu verða rúmlega 450 íbúðir, auk verslunar- og þjónusturýma á jarðhæð. Arkitektastofan Nordic Office of Architecture hannar svæðið, en Rut Káradóttir innanhússarkitekt hefur veg og vanda af hönnun innréttinga og sameiginlegra rýma. Á milli húsanna verða inngarðar að evrópskri fyrirmynd. Orkureiturinn er fyrsta íbúðaskipulagið í Reykjavík sem hlýtur BREEAM-umhverfisvottun auk þess sem stefnt er að því að allar íbúðir á reitnum hljóti Svansvottun.
Hér er á ferðinni metnaðarfullt uppbyggingarverkefni og augljóst að vandað hefur verið til verka við hönnun og skipulag á Orkureitnum. Það var frábært að sjá hversu vel hefur tekist að byggja upp í samræmi við það sem lagt var upp með í byrjun, og verður áhugavert að fylgjast með áframhaldandi uppbyggingu á reitnum. Það verður ekki síður fróðlegt að fá að kíkja í heimsókn á ný eftir nokkur ár, þegar uppbyggingunni verður lokið.
Við þökkum Þorsteini Yngva og Safír kærlega fyrir góðar móttökur og fróðlega kynningu.







